Á mánudaginn síðasta var fyrsti dagurinn okkar en þá fórum á leikskóla í Dunoon, við erum í rauninni í fátækasta hlutanum þar og það er í kringum 60% atvinnuleysi þar. Sum börnin koma um hálf 6 á morgnanna og eru ekki sótt fyrr en 7 - 8 á kvöldin svo þau eru voðalega lítið alin upp. Það var líka alveg ótrúlegt að sjá nestið þeirra en það var mest megnis snakkpokar og kex, aðeins lítill hluti af þeim var með jógúrt og ávexti. Þau voru samt virkilega lífsglöð og það var mjög mikil orka í þeim. Ef ekki væri fyrir sjálfboðaliðana þá myndu þessi grey sitja inn í gám allan daginn og gera ekki neitt því forstöðukonunni þarna virðist vera alveg sama um þau. Á morgnanna er þeim kennt grunn ensku, litina, dýr, ávexti og líkamspartana, seinni partarnir fara svo bara í að leika við þau. Fyrsti dagurinn gekk vel en því miður þegar við vorum að fara um hádegið voru byrjuð mótmæli í hverfinu. Það var búið að varpa tveim minniháttarsprengjum á veginn svo hann logaði allur. Það var verið að mótmæla rafmagnsleysi en það var búið að vera rafmagnslaust þarna í frekar langan tíma og þolinmæði fólksins var greinilega komin að þrotum. Löggan mætti á svæðið vígbúin og ráðlagði okkur að vera ekkert að koma aftur fyrr en ástandið væri búið að batna.
Restina af vikunni vorum við að vinna í öðru chreshi sem er tiltölulega ný opnað. Það var aðeins fyrir utan Cape Town og má segja að það hafi verið staðsett í ruslahaugunum. Þarna voru ungabörn frá nokkra mánaða og alveg uppí 5 ára. Þar er eldri krökkunum kennt grunnensku á meðan litlu börnin fátt annað en að sitja á gólfinu og leika sér, þau eru yfirleitt aldrei tekin upp eða sinnt á nokkurn hátt. Ef ekki væri fyrir sjálfboðaliðana sem sjá um að halda á þeim, sýna þeim ásthúð og leika við þau væri þau bara þarna, en það sást að sum þeirra eru virkilega bæld og gráta stöðugt.
Við vorum mest megnis með litlu börnunum þar sem við lékum við þau og héldum á þeim og sýndum þeim athylgi sem þau annars fá ekki.
Við unnum felsta daga bara fyrri partana vegna ástandsins í Townshippunum í Cape Town, en það ríkti mikil ólga.
Föstudagurinn fór í róleg heit og við gerðum heiðalega tilraun til að vinna í taninu okkar og kíktum á ströndina. Það hins vegar gekk ekki mjög vel þar sem það er alltaf hvasst í Cape Town og það rigndi yfir okkur sand á ströndinn.
Laugardaginn fórum við í miðborgina, Waterfront sem er mikill ferðamannastaður, og fórum í stærsta moll sem við höfum nokkurn tíman séð!! Að sjálfsögðu villtumst við oftar en einu sinni en fundum þó alltaf réttu leiðina á endanum en góða við þetta að við náðum að versla örlítið og Anna fékk smá shopaholic einkenni en náði að halda þeim nokkuð vel niðri :)
Sunnudagurinn fór í strætóferð um borgina þar sem við skoðuðum meðal annars kirstenbosch garðinn sem var virkilega fallegur, ábiggilega mjög gaman að koma þangað að sumri til þegar allar plöntur eru útsprungnar. Við fórum svo á eina elstu vínekruna þar sem við skoðuðum okkur um og fórum svo til Hout bay sem er bær hérna fyrir utan Cape town. Þetta var virkilega skemmtilegt allt saman.
Við ætlum svo að prófa nýtt verkefni þessa vikuna en við verðum að kenna krökkum á aldrinum 9 - 11 ára stærðfræði í tölvum og förum svo seinni partana í einhver chresh. Við vorum svo að panta okkur 4 daga ferð frá 5-8 apríl þar sem við munum meðal annars fara í safarí ferð, fílsbak, skoða tvo þjóðgarða og skoða strúta auk fjölda annarra hluta. Við erum virkilega spenntar fyrir þessu.
Annas er allt gott að frétta af okkur, við erum fluttar í nýtt hús þar sem við höfum nettengingu inn í húsinu. Áður sátum við alltaf úti í garði á kvöldin að krókna úr kulda (það verður kalt á kvöldin!!)
Annas bara gleðilega páska og borðið yfir ykkur af súkkulaði og góðum mat :)
Þessi er of sæt
Þetta er heimilið sem við vorum mest megnis í þessa vikuna
Kristenbosch, virkilega fallegt þarna!