Monday, April 29, 2013

Síðustu dagarnir í Cape town

Jæja það er heldur betur langt síðan við létum vita af okkur síðast. Dagarnir hérna hafa bara flogið áfram, það er eiginlega með ólíkindum hversu hratt tíminn hefur liðið. Við höfum reyndar ekki verið að gera mikið á sídustu tveimur vikum annað en að vera med yndislegu börnunum okkar í Skandal camp og eyða tíma með frábæru sambýlingunum okkar.    

Okkur líkar alltaf meir og meir við Cape town með hverjum deginum, fólkið hérna er frábært og þad er allt svo fallegt hérna. Það skiptir líka ekki máli hvort þú sért staddur í stórborginni eða townshippunum, það eru allir svo vinarlegir og vilja spjalla. Flestir halda reyndar að við séum frá Finnlandi og verða yfirleitt mjög hlessa þegar við segjumst vera frá Íslandi, fólk er annas mjög forvitið um Ísland og veit lítið sem ekkert um það.

Á föstudaginn var strandar dagur med krökkum úr Du Noon townshippinu. Það var ótrúlega skemmtilegt og það var svo gaman að sjá hvað krakkarnir voru glaðir, þetta var í fyrsta skipti sem flest þeirra sáu strönd svo þeim fannst þetta alveg æðislegt. Eftir það fórum við í mjög frægt bakarí sem er staðsett í midborginni, Charlys bakery. Kökurnar þar eru risavaxnar og bolla kökurnar skreyttar með andlitum teiknimyndapersóna. Þær brögðuðust líka guðdómlega!













Sjáið bara hvað þetta er krúttlegt bakarí!!







Á laugardaginn löbbuðum við loksins uppá Table mountain. Við vorum búnar að fresta því nokkuð lengi vegna veðurs og almennrar leti. Anna þurfti líka að undirbúa sig andlega undir þetta því henni er ekki vel við fjallgöngur. Gangan var erfið og á ákveðnum tímapunkti vorum við alveg að gefast upp. Anna tók sér bara sinn tíma í þetta og hitti fullt af áhugaverðu fólki á leiðinni upp, Sigurbjörg reyndi aftur á móti ad halda í við sænska fólkið okkar sem nánast hljóp upp fjallið. Allstaðar á leiðinni hitti maður fólk sem var að hvetja mann, ''Áfram, það eru bara 20 mín eftir!!'' ,,You can do this". Það var virkilega góð tilfinning að ná loksins á toppinn eftir tveggja tíma göngu. Þvílík náttúrudýrð og útsýnið var ótrúlegt. Við vorum líka ótrúlega heppin með veður, það var nefnilega sem betur fer ekki steikjandi hiti. Við ákváðum svo að taka bara kláfinn niður, vorum ekki alveg í stuði fyrir að labba niður aftur. Restin af deginum fór í almenna slökun og svo fórum við allir sjálfboðaliðarnir út að borða, við fengum okkur loksins almennilegt kjöt og almennilega máltíð! Hlökkum mikið til ad koma heim og fá mömmumat þar sem við erum orðnar langþreyttar á pasta, múslí og jógúrt!





Anna hafði það á toppinn en það var ekki mikið meira eftir hjá hvorugri okkar!











Í gær var svo svona social hjá okkur sjálfboðaliðunum. Við fórum öll med Nickie. sem er yfir verkefninu okkar, á Mzolies, en það er grillstaður í einu af townshippunum hérna. Þetta er gríðarlega vinsæll staður og hvern einasta sunnudag hópast fólk saman þarna frá klukkan 11 á daginn og er þarna langt fram eftir kvöldi. Fólk byrjar líka að drekka klukkan 11 og gerir það allan daginn svo þið getið ímyndað ykkur i hvernig ástandi fólkið er í kringum 5,6 leytið. Eina sem maður fær á staðnum er kjötið, allt annað verður þú að koma med sjálfur eða borða einfaldlega með puttunum eins og við gerðum. Það er líka DJ þarna svo það er brjáluð tónlist og allir dansandi. Þetta var eitthvað alveg nýtt fyrir okkur, staðurinn var svo lifandi og það voru allir svo glaðir. Öll gatan fyrir utan iðaði líka af lifi. Þetta var ótrúlega skemmtileg upplifun.





Þetta var svo gott! og hver segir svo að sjálfboðaliðar kunni ekki að skemmta sér!











Í dag var svo síðasti dagurinn okkar í creshinu okkar. Við keyptum sápukúlur handa krökkunum og þau voru alveg dolfallin yfir þeim og höfðu greinilega aldrei séð svoleiðis áður. Við gáfum þeim líka allskonar gotterí svo þau voru mjög ánægð með okkur. Kveðjustundin var mjög erfið og maður gat eiginlega ekki annað en grátið því við eigum eflaust ekki eftir að sjá þau öll aftur. Þó við séum ekki búnar að vera með þeim nema í kringum 4 vikur þá er maður búin ad mynda ákveðin tengsl við þau og þau eru farin ad þekkja okkur. Það brítur líka hjartað í okkur að vita að það mun sennilega enginn koma í okkar stað því það eru svo fáir sjálfboðaliðar hérna þessa stundina. Þessir krakkar eru yndislegir en koma því miður frá slæmum heimilim. Sum litlu börnin eru látin vera með sömu bleyjuna í 1-2 daga. Þið getið ímyndað ykkur hversu illa þeim líður, þau eru líka öll hálf lasin því það er svo kalt heima hjá þeim á næturnar. Við erum strax farnar að plana næstu ferð hingad að heimsækja börnin okkar ;)

                                      Þessar elskur! við eigum svo eftir að sakna þeirra!


Við erum svo bara ad klára að pakka núna, það er klárlega það leiðinlegasta við að ferðast. Anna er líka búin að kaupa svo mikið að það kemst varla einn hlutur í bakpokann i viðbót. Hann er alveg troðinn!!  Flugið okkar er klukkan 6:15 í fyrramálið svo við þurfum að vera mættar út á flugvöll upp úr 3, úfff. Við fljúgum svo til Johannesarborgar og þaðan til Livingstone í Zambiu. Við verðum þar í 6 daga, ætlum að skoða Viktoriufossana og reyna að fara í alvöru safarí ferð til Botswana. Erum mjög spenntar fyrir að sjá meira af Afríku.

Við lofum svo að láta vita af okkur í Zambíu. Hlökkum til að sjá ykkur eftir ekki nema 9 daga!



Fína rómatískakvöldstundin okkar á ströndinni með þessu líka fallega sólsetri!

Tuesday, April 9, 2013

Tölvutímar, Scendal Camp og Garden Route



Það er búið að vera svo mikið að gera hjá okkur að við höfum ekki haft tíma til að skrifa blogg. Síðustu tvær vikur hafa eiginlega bara flogið í burtu. Í vikunni fyrir páska fórum við í skóla sem er sirka 30.mín í burtu frá okkur og kenndum börnum stærðfræði í tölvum. Það var reyndar mjög skemmtilegt og tíminn leið rosalega hratt. Sum börnin voru ótrúlega klár á meðan önnur vissu varla hvað 2+2 voru. Það sem vafðist líka rosalega fyrir þeim var klukkan, þau hafa greinilega fengið mjög takmarkaða kennslu í henni. Seinni partana fórum við svo í annan skóla, það voru reyndar mjög fá börn svo við vorum aðallega bara að leika við þau. Þessi skóli er samt ótrúlega fínn og börnin fá mjög góða kennslu í ensku. Börnin voru líka mjög hreinleg svo við héldum að þau kæmu bara frá mjög fínum heimilum miðað við það sem við höfum verið að sjá hérna. En svo var ekki, foreldrar flestra þessara barna eiga við mikinn áfengisvanda og jafnvel eiturlyfjavanda svo heimilislíf þessara barna er alls ekki gott.
Þar sem þetta var vikan fyrir páska vorum við með smá páskaskemmtun fyrir börnin, en þau fengu að mála egg og leita að súkkulaði eggjum, þeim fannst það mjög skemmtileg og voru eiginlega í algjöru sykursjokki.

Á föstudaginn langa fórum við í Cape point ferð sem var mjög skemmtileg en við byrjuðum á að fara til Simon's town að skoða mörgæsir, það var ótrúlega fyndið að sjá þær í sandi. Manni finnst eiginlega að þær eigi bara að vera í snjó. Það var líka svo heitt þannig þær voru mjög latar. Svo fór Sigurbjörg í smá hjóltúr en Anna treysti ekki marða rófubeininu sínu í hjóltúrinn (sandbrettis meiðsl). Hópurinn borðaði svo hádegismat saman en við fengum óvænta gesti sem reyndu að stela matnum okkar, það voru nefnilega fullt af bavíönum á þessu svæði. Þeir náðu samt ekki nema einu epli greyin. Eftir matinn hjólaði Sigurbjörg svo 6km í viðbót en öll leiðin var upp á við svo hún var frekar mikið búin á því á leiðarendanum heeehe. Við skoðuðum svo Cape point en það er suðvestasti oddinn á Afríku, það var gríðarlega fallegt allt þarna og mjög mikið af túristum. Við skoðuðum svo líka Cape of good hope þar sem við þurftum að slást við brjálaða kínverja til að fá að taka eina mynd af okkur með fræga skiltinu sem stendur þar.
Cape point




Annars gerðum við mest lítið um páskana því veðrið var alveg ömurlegt, rigning og frekar kalt. Við borðuðum páskamat með öllum sjálfboðaliðunum sem var reyndar mjög fínt og kíktum svo með sambýlingum okkar í waterfrontið að versla smá.

Frá þriðjudeginum fram á fimmtudaginn vorum við svo í Scendal Camp, chreshinu okkar :). Við erum alveg orðnar ástfangnar af börnunum okkar þar, þau eru alveg one of a kind. Þau eru líka farin að þekkja okkur og verða alltaf gríðarlega glöð þegar við komum. Við sýndum gífurlega málningarhæfileika og máluðum nýja skúrinn þeirra á fimmtudeginum svo þau voru mjög glöð með það. Þessi eldri eru líka rosalega dugleg að læra og eru eiginlega með stafróið, líkamspartana og tölurnar á hreinu.


Síðasta föstudag fórum við svo í fjögra daga ferðina okkar sem við vorum búnar að bíða eftir mjög lengi. Við fórum með hóp af brasilísku fólki sem talaði sáralitla ensku en er samt að læra ensku hér í Cape town. Það voru reyndar líka tvær aðrar stelpur en þær voru frá Bretlandi og Kanada svo við vorum mikið með þeim. Við byrjuðum á að fara í safarí ferð en þar sáum við nashyrninga, buffaló, sebrahesta, gíraffa, strúta, ljón, fíla, antilópur og blettatígur. Þetta var samt ekki alveg ekta safarí því þeir vissu eiginlega alveg hvar dýrin voru, þetta var meira eins og stór villtur dýragarður. Það var samt ótrúlega gaman að sjá dýrin í svona mikilli nálægð. Eftir þetta fórum við svo í labbitúr með ljónum, ójá! Þvílík snilld sem það var. Ljónin voru tvö en þau hétu Nala og Múfasa, þau eru í kringum tveggja ára gömul. Ljónagarðurinn fékk þau bæði fljótlega eftir fæðingu og hafa alið þau upp síðan. Við fengum að klappa Nölu, það var ótrúleg tilfinning að vera klappa ljóni. Við tókum líka fullt af flottum myndum sem við förum að setja inn fljótlega. 

Á laugardagsmorgninum fórum við á kanó í mjög fallegu veðri og umhverfi þar sem Anna tókst á við vatnsfælni sína. Við fórum líka á útsýnispall Knysna sem er talinn einn af fallegri stöðum hér í Suður Afríku. Brasilíska fólkið fór svo í hæsta teygjustökk í heimi en við vorum of miklir aumingjar í það, þetta var svo fáránlega hátt og langt!! Við skemmtum okkur bara yfir því að sjá alla panikka rétt fyrir stökkið. Við fórum svo í Tsitsikamma þjóðgarðinn en útsýnið þar var fáránlega fallegt, það var bara eins og maður væri kominn í paradís. Við enduðum svo daginn á Jeffreys bay en það er svona strandbær. Við gistum í herbergi með þremur af brasílsku stelpunum svo þetta var svefnlítil nótt, það brotnaði rúm hjá einni um miðja nóttina og fleira skemmtilegt ;)

Á sunnudeginum þurftum við að keyra mjög langa leið til að komast í fílagarðinn en það var samt alveg þess virði. Við byrjuðumn á að fara á fílsbak sem var svo sannarlega öðruvísi upplifun. Við fengum svo að gefa fílunum að borða ávexti sem þeir voru mjög sáttir með og gáfu okkur knús. Þetta var eiginlega með því skemmtilegasta í ferðinni. 



Á mánudaginn byrjuðum við á að fara á strútsbýli. Þar fékk Sigurbjörg strútsknús og strútsnudd en Anna fékk að sitja á strút! Við fengum fræðslu um strútana og sáum dverg strút! Það fóru svo nokkri í reiðtúr á strút en það var fyndið að sjá hvernig þau hentust um því strútar geta bara farið annað hvort hratt eða mjög hratt!

Næsta stopp voru Cango hellarnir þar sem hægt var að velja um venjulegan túr um þá eða ævintýratúr. Þetta eru fáránlega fallegir hellar og ótrúlegt að vera þarna inni og sjá alla þessa náttúrufegurð en Sigurbjörg fór í ævintýraferð um hellana sem fól það í sér að skríða í gegnum 50 cm há göng, klifra upp 40 cm gat og almennt séð skríða í þröngum göngum!





Næst tók við 6 klukkutstunda bílferð heim með syngjandi Brössum, við héldum að við fengjum að heyra eitt lag en 1 og hálfum tíma seinna var geðheilsa okkur löngu farin útum gluggann og restin af bílferðinni einkenndist af hlátusköstum og virkilega buguðum Íslendingum! En loksins komumst við þó heim en þá tók á móti okkur fullt hús af nýju fólki en á meðan við vorum í burtu komu fjórir nýjir sjálfboðaliðar í húsið okkar svo núna er fullt hús!

Næsta vika verður róleg og ekkert plan þannig séð en um næstu helgi förum við á rugby leik, ströndina og ætlum loksins að fara upp Table Mountain. En við erum samt ekki að gera okkur grein fyrir því að það eru 4 vikur búnar og bara 4 vikur eftir, time flies when you are having fun!