Fyrsti dagurinn fór mestmegnis í svefn og smá göngutúr um Livingstone sem er bara frekar lítill og krúttlegur bær og það má segja við séum fyrst núna að upplifa Afríku! Þegar við löbbum um götur bæjarnins erum við oftast eina hvíta fólkið og ekki bætir að við erum ljóshærðar að auki og vekjum því en meiri athygli :) en annars er þetta svo allt öðruvísi en það sem við höfum séð hingað til að það má segja við höfum orðið fyrir smá menningarsjokki í byrjun.
Á miðvikudaginum fórum við í smá göngutúr um bæinn með leiðsögumanni sem hostelið býður upp og fengum við að sjá aðeins inni í gamla bæinn hér þar sem það eru malarvegir og grænmetismarkaðir út um allt. En restina af deginum fór bara í smá tantíma þar sem hitinn hér er 30-33°C alla daga, logn og heiðskýrt svo við erum að gera allt sem við getum til að viðhalda þessu tani okkar :)!
Fimmtudagurinn fór í Viktoriufossana og býður hostelið upp á fríar rútuferðir þanngað svo það var nokkuð stór hópur sem fór ásamt okkur. Þegar við komum vorum við búnar að búa okkur undir að sjá hina miklu fossa en við hittum akkúrat á það tímabil þar sem fossarnir eru það vatnsmiklir að það er eins og helli rigning að reyna að sjá þá og alltaf eins og mistur eða þoka svo þeir sáust ekki nógu vel, en það sem við sáum var alveg þess virði. Þvílík stærð líka sem þessir fossar eru. Við hittum einmitt mann frá Rússlandi sem sagði okkur að Dettifoss væri einn af fallegustu fossum sem hann hafði séð en hann væri ekkert miðað við Viktoriufossana! En við röltum um allt og skoðuðum okkur vel um og tókum fullt af myndum.

Föstudagurinn byrjaði eldsnemma í morgunsárið þar sem við skelltum okkur yfir til Botswana í bátsferð og safaríferð um Chobe þjóðgarðinn. Við byrjuðum á bátsferðinni og sigldum eftir ánni á milli Botswana og Namibíu og sáum flóðhesta baða sig, litla krókódíla, fíla og ýmsar tegundir af fuglum.
Fíll sem var bara að hafa það kósý og svo hrúga af flóðhestum í vatninu.
Eftir hádegi fórum við í safaríferðina í gegnum Chobe þjóðgarðinn en hann innheldur 4 af the big five en þeir hafa ekki nashyrninga. En þarna eru dýrin frjáls og drepa hvort annað sér til matar svo þetta var eins og að keyra í gegnum alvöru óbyggðir. Garðurinn hefur um 100.000 fíla og fengum við því að sjá fullt af fílum og margir stóðu ekki mikið meira en 2-3 metra frá bílnum sem við vorum í. Við sáum einnig buffaló, fullt af antilópum, skordýrum, fuglum, gíraffa og svo tvö ljón. En það var eitt af því stórkostlegasta sem við höfum upplifað! Fyrst sáum við bara eitt ljón sem lá í leyni en þegar betur var að gáð kom annað í ljós og þá tilkynnti leiðsögumaðurinn okkar að þau væru í veiðiham, svo stóð annað ljónið upp og fór að labba í áttina að bílnum okkar og við vorum vinsamlegast beðin um að segja ekki orð og ekki hreyfa okkur. Ljónið stóð mestalagi eina 2 metra frá okkur og staðnæmdist þar í dágóðan tíma svo mörg hjörtu hættu að slá í smá tíma því við vissum ekkert hvað þetta ljón ætlaði sér. En svo tók það á rás í áttina að einum gíraffa og náði að lokka gíraffann þar sem hitt ljónið stóð og beið en sem betur fer að við höldum komst gíraffinn í burtu! En að fá að vera vitni að alvöru veiðum hjá ljónum var stórkostlegt og við erum enþá í smá sjokki yfir að hafa séð þetta! :)
Meiri fílar að fá sér að drekka og einn buffaló að chilla þarna með þeim og svo má sá þarna hversu nálægt okkur ljónið var í þessum veiðiham sínum!!
En allt svæðið þarna í kring er virkilega fallegt og Zambía yfir höfuð er glæsileg. Öll þessi náttúra og svo sólsetrið er stórkostlegt. En í dag, laugardag, fórum við seinni partinn í rómatíska sunset cruse eftir Zambezi ánni eftir að hafa fyrripartinn grillað okkur laglega frá 10-2, svo við erum alveg þokkalega rauðar og fallegar í dag :)
En svo er það Dubai á morgun og lendum við þar síðan á mánudaginn og við verðum komnar til Íslands á miðvikudagskvöld! Trúum hreinlega ekki að það séu tveir mánuðir síðan þetta ferðalag okkar hófst en allt tekur víst enda á endanum!