
Jæja, nú er þetta allt loksins að fara skella á. Hálfs árs biðin er loks á enda og þetta er að fara verða að veruleika. Ég ákvað að gera blogg fyrir áhyggjusama foreldra okkar og ættingja. Það er líka svo dýrt að hringja heim. Það verður líka bara gaman að lesa þetta eftir á. Brottför er 10.mars en þá munum við fljúga til Kaupmannahafnar og gista eina nótt. Við förum síðan þaðan til Dubai sem er 6kls flug og stoppum í nokkra kls á flugvellinum áður en við fljúgum svo beint til cape town sem er sirka 10kls flug. Alls verða þetta í kringum 20kls ferðalag frá kaupmannahöfn, úfffff!
Þegar við komum svo til Cape town fer fyrsta vikan okkar í svona skemmtipakka þar sem við munum meðal annars labba upp hið fræga Table mountain, skoða Robben island þar sem Nelson Mandela var í fangelsi, skoða fátaæktarhverfin með einhverjum local, skoða vínekrur og fara í vínsmökkun og síðast en ekki síst læra á brimbretti þar sem Sigurbjörg mun eflaust slasa sig ef ég þekki hana rétt.
Þegar við erum búnar í þessum pakka byrjum við í sjálfboðaliðastarfinu og verðum í því í sex vikur. Við munum starfa á leikskólum í fátæktarhverfi sem heitir Dunoon. Þar munum við meðal annars kenna börnunum ensku, leika við þau og margt fleira. Ég er viss um að þetta verði frábær lífsreynsla fyrir okkur og þetta er eitthvað sem maður mun aldrei gleyma. Við erum búnar á fá misskemmtileg comment á þessa ævintýraþrá okkar. Flestir eru þó mjög jákvæðir og ánægðir með mann að láta verða að þessu. Ég geri mér fulla grein fyrir því að ég er ekki að fara bjarga heiminum á þessum stutta tíma en ég geri kannski smá gagn og það nægir mér.
Eftir að við erum búnar að vera í Cape town í alls 7 vikur förum við til Livingstone í Zambíu í 5 daga. Þar ætlum við að skoða Viktoríufossana og fara í safarí ferð í Chobe national Park í Botswana.
Við fljúgum svo frá hinni alræmdu Jóhannesarborg þann 5.maí til Dubai og stoppum þar í tvo daga til að skoða það helsta.
En nóg í bili, fyrsta ferðabloggið kemur þegar við erum mættar til Cape town. Endilega fylgist með hér og á fésbókinni. Lofum að setja inn alveg fullt af myndum.
|
Víj, hlakka til að fylgjast með ykkur í þessu ævintýri! Þetta verður sko æðisleg lífsreynsla!
ReplyDeleteGangi ykkur rosa vel og skemmtið ykkur :)
Sakn og knús!
Stoltur af þér litla systir, verður gaman að fá að fylgjast með.
ReplyDeletestrax farin að sakna ykkar!! gangi ykkur vel og farið varlega :) mun sko fylgjast vel með a blogginu ;*
ReplyDeleteGóða ferð og farið voða varlega :)
ReplyDeleteNú ertu mætt...heimta blogg ;)
ReplyDeletegangi ykkur mjög vel:)með kveðju sunna rut
ReplyDelete