Jæja fyrstu dagarnir okkar hér í Cape town hafa heldur betur verið áhugaverðir. Ferðin gekk vel utan við smá óhapp í byrjun. Það kom nefnilega enginn að sækja okkur á flugvöllinn, þannig við stóðum þarna frekar lost. Allir að bjóða okkur far hvert sem er. Við tókum svo þá vitlausu ákvörðun að fara með manni sem sagðist vinna hjá flugvellinum (sem hann gerði) en við vorum ekki alveg að kaupa það. Þegar við komum svo að bílnum var hann bara ómerktur sportbíll. Þessar 30 mín sem þessi bílferð tók vorum við með hjartað í buxunum og farnar að sjá fyrir okkur atriði úr Taken. En við komumst á hostelið okkar óskaddaðar.
Fyrsti dagurinn okkar fór í Township túr í Langa sem er eitt stærsta og elsta townshippið hér í Cape town. Við fengum að labba í gegn með strák sem býr þar. Hann sýndi okkur meðal annars húsið sitt og við kíktum líka á leikskóla. Það var virkilega áhugavert að sjá hvernig townshippið skiptist, það voru alveg mjög fín hús þarna og svo voru bara pínulitir skúrar. Fólkið sem við hittum var mjög almennilegt og áhugasamt um Ísland.
Á öðrum deginum okkar fórum við á Sandbretti í glampandi sól fyrri part dagsins. Það var algjör snilld, við fengum líka svo skemmtilegan leiðsögumann með okkur. Anna náði þessu eftir nokkrar áhugaverðar ferðir þar sem hún dúndraðist í sandinn og Sigurbjörg faceplantaði nokkrum sinnum í sandinn. Seinni part dagsins fórum við svo á brimbretti á big bay sem er hérna rétt hjá okkur. Það var virkilega áhugavert, okkur var bara hent út í sjóinn með brettið og við héldum á tímabili að við værum að fara drukkna í sjónum. Öldurnar skelltust bara á okkur og við flutum bara eitthvert.Við gleyptum bara allan sjóinn og vorum virkilega klaufalegar við þetta. Sigurbjörg fór reyndar í smá einkakennslu með kennaranum og þar náði hún aðeins betri tökum á þessu. Þetta var samt mjög gaman en við höldum að við látum þetta vera næstu vikurnar.
Þriðja daginn okkar fórum við til Robben island, þar sem var einu sinni risa stórt fangelsi. Við fórum með ferju yfir sem tók í kringum 30 mín og fórum svo í rútu í kringum eyjuna því hún er alveg risastór. Þetta var mjög sögulegur túr, fengum að vita allt um hvernig þetta var hér áður fyrr. Við fengum svo að labba í gegnum fangelsið sjálft með manni sem var einu sinni sjálfur fangi þarna. Við sáum klefann hjá Nelson Mandela og fengum smá fyrirlestur um hann. Eftir að við komum svo úr ferjunni þurftum við að finna strætóstöð til að komast aftur heim. Við löbbuðum í hringi í svona klukkutíma áður en við fengum réttar leiðbeiningar, það virtist nefnilega enginn vita hvar þessi blessaða stoppustöð var.
Við fórum svo í víntúr í gær þar sem við fórum á fimm vinekrur hérna í Cape town og smökkuðum yfir 35 víntegundir. Við vorum með virkilega skemmtilegum 12 manna hóp af fólki frá 19 ára alveg uppí 40 ára. En þetta var eiginlega með því skemmtilegasta sem við erum búnar að gera hérna. Við fengum öll drinking-hats sem við vorum með alla ferðina og að sjálfsögðu var Sigurbjörg með sullu-hattinn allan tímann eiginlega. Þetta voru virkilega fallegar vínekrur og vínin voru virkilega góð. Núna kunnum við sko að velja okkur vín. Eftir víntúrinn fór hópurinn á bar á Long street í miðborginni, það var st.peters day hér í gær svo það voru allir klæddir í grænt og allir drykkir grænir. Við vorum mest með fjórum norskum stelpum sem eru á sama hosteli og við. Um kvöldið ákváðum við svo að best væri að taka bara taxa heim allar saman, það voru mjög mikil mistök. Það tekur í kringum 15 mín að keyra frá miðborginni að hostelinu okkar en við keyrðum í kringum tvo klukkutíma þar sem bílstjórinn hafði ekki hugmynd um hvert hann væri að fara. Hann gat líka ekki keyrt beint og stoppaði yfirleitt ekki á rauðum ljósum, annaðhvort var hann drukkinn eða high. Við vorum allar orðnar mjög taugaveiklaðar og enginn okkar var með síma. Við komumst þó á endanum heim sem betur fer.
Annas lítur þetta allt rosalega vel út hérna, það eru allir mjög vingjarnlegir og það er alveg fullt af öðrum sjálfboðaliðum hérna. Cape town er virkilega falleg og veðrið er búið að vera ágætt síðan við komum. Það er reyndar búið að rigna svolítið, við vonum að hún fari að hætta svo við getum farið að vinna í taninu okkar.
Við byrjum svo í sjálfboðaliðastarfinu í dag, svo það kemur blogg í vikunni um það.
knús á ykkur heima, við söknum ykkar strax!
Söknum ykkar líka :)
ReplyDelete