Okkur líkar alltaf meir og meir við Cape town með hverjum deginum, fólkið hérna er frábært og þad er allt svo fallegt hérna. Það skiptir líka ekki máli hvort þú sért staddur í stórborginni eða townshippunum, það eru allir svo vinarlegir og vilja spjalla. Flestir halda reyndar að við séum frá Finnlandi og verða yfirleitt mjög hlessa þegar við segjumst vera frá Íslandi, fólk er annas mjög forvitið um Ísland og veit lítið sem ekkert um það.
Á föstudaginn var strandar dagur med krökkum úr Du Noon townshippinu. Það var ótrúlega skemmtilegt og það var svo gaman að sjá hvað krakkarnir voru glaðir, þetta var í fyrsta skipti sem flest þeirra sáu strönd svo þeim fannst þetta alveg æðislegt. Eftir það fórum við í mjög frægt bakarí sem er staðsett í midborginni, Charlys bakery. Kökurnar þar eru risavaxnar og bolla kökurnar skreyttar með andlitum teiknimyndapersóna. Þær brögðuðust líka guðdómlega!
Sjáið bara hvað þetta er krúttlegt bakarí!!
Á laugardaginn löbbuðum við loksins uppá Table mountain. Við vorum búnar að fresta því nokkuð lengi vegna veðurs og almennrar leti. Anna þurfti líka að undirbúa sig andlega undir þetta því henni er ekki vel við fjallgöngur. Gangan var erfið og á ákveðnum tímapunkti vorum við alveg að gefast upp. Anna tók sér bara sinn tíma í þetta og hitti fullt af áhugaverðu fólki á leiðinni upp, Sigurbjörg reyndi aftur á móti ad halda í við sænska fólkið okkar sem nánast hljóp upp fjallið. Allstaðar á leiðinni hitti maður fólk sem var að hvetja mann, ''Áfram, það eru bara 20 mín eftir!!'' ,,You can do this". Það var virkilega góð tilfinning að ná loksins á toppinn eftir tveggja tíma göngu. Þvílík náttúrudýrð og útsýnið var ótrúlegt. Við vorum líka ótrúlega heppin með veður, það var nefnilega sem betur fer ekki steikjandi hiti. Við ákváðum svo að taka bara kláfinn niður, vorum ekki alveg í stuði fyrir að labba niður aftur. Restin af deginum fór í almenna slökun og svo fórum við allir sjálfboðaliðarnir út að borða, við fengum okkur loksins almennilegt kjöt og almennilega máltíð! Hlökkum mikið til ad koma heim og fá mömmumat þar sem við erum orðnar langþreyttar á pasta, múslí og jógúrt!
Anna hafði það á toppinn en það var ekki mikið meira eftir hjá hvorugri okkar!
Í gær var svo svona social hjá okkur sjálfboðaliðunum. Við fórum öll med Nickie. sem er yfir verkefninu okkar, á Mzolies, en það er grillstaður í einu af townshippunum hérna. Þetta er gríðarlega vinsæll staður og hvern einasta sunnudag hópast fólk saman þarna frá klukkan 11 á daginn og er þarna langt fram eftir kvöldi. Fólk byrjar líka að drekka klukkan 11 og gerir það allan daginn svo þið getið ímyndað ykkur i hvernig ástandi fólkið er í kringum 5,6 leytið. Eina sem maður fær á staðnum er kjötið, allt annað verður þú að koma med sjálfur eða borða einfaldlega með puttunum eins og við gerðum. Það er líka DJ þarna svo það er brjáluð tónlist og allir dansandi. Þetta var eitthvað alveg nýtt fyrir okkur, staðurinn var svo lifandi og það voru allir svo glaðir. Öll gatan fyrir utan iðaði líka af lifi. Þetta var ótrúlega skemmtileg upplifun.
Þetta var svo gott! og hver segir svo að sjálfboðaliðar kunni ekki að skemmta sér!
Í dag var svo síðasti dagurinn okkar í creshinu okkar. Við keyptum sápukúlur handa krökkunum og þau voru alveg dolfallin yfir þeim og höfðu greinilega aldrei séð svoleiðis áður. Við gáfum þeim líka allskonar gotterí svo þau voru mjög ánægð með okkur. Kveðjustundin var mjög erfið og maður gat eiginlega ekki annað en grátið því við eigum eflaust ekki eftir að sjá þau öll aftur. Þó við séum ekki búnar að vera með þeim nema í kringum 4 vikur þá er maður búin ad mynda ákveðin tengsl við þau og þau eru farin ad þekkja okkur. Það brítur líka hjartað í okkur að vita að það mun sennilega enginn koma í okkar stað því það eru svo fáir sjálfboðaliðar hérna þessa stundina. Þessir krakkar eru yndislegir en koma því miður frá slæmum heimilim. Sum litlu börnin eru látin vera með sömu bleyjuna í 1-2 daga. Þið getið ímyndað ykkur hversu illa þeim líður, þau eru líka öll hálf lasin því það er svo kalt heima hjá þeim á næturnar. Við erum strax farnar að plana næstu ferð hingad að heimsækja börnin okkar ;)
Þessar elskur! við eigum svo eftir að sakna þeirra!
Við erum svo bara ad klára að pakka núna, það er klárlega það leiðinlegasta við að ferðast. Anna er líka búin að kaupa svo mikið að það kemst varla einn hlutur í bakpokann i viðbót. Hann er alveg troðinn!! Flugið okkar er klukkan 6:15 í fyrramálið svo við þurfum að vera mættar út á flugvöll upp úr 3, úfff. Við fljúgum svo til Johannesarborgar og þaðan til Livingstone í Zambiu. Við verðum þar í 6 daga, ætlum að skoða Viktoriufossana og reyna að fara í alvöru safarí ferð til Botswana. Erum mjög spenntar fyrir að sjá meira af Afríku.
Við lofum svo að láta vita af okkur í Zambíu. Hlökkum til að sjá ykkur eftir ekki nema 9 daga!
þetta er búið að líða ekkert smá hratt! hlakka til að sjá ykkar fallega brúna andlit eftir nokkra daga ;*
ReplyDeleteNjótið seinustu dagan, en farið samt varlega :) Hlakka svo til að sjá þig Anna mín :*
ReplyDeleteææææi þið eruð svo sætar!!:*
ReplyDeletenú verður farið grimmt í ljós til að lúkka ekki fyrir að vera draugur hliðiná ykkur haha!
Njótið síðustu dagana og hlakka til að sjá ykkur :)
það er greinilega búið að vera mikið að gera hjá ykkur þessa síðustu daga og mjög gaman vona að allt gangi vel í Sambíuferðinni ykkar en við erum hér heima farin að telja dagana í heimkomu ykkar og hlökkum til að sjá ykkur
ReplyDelete